[01:25]
Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
Virðulegur forseti. Hv. þm. ræddi nokkuð um ræðu mína í dag og afstöðu mína til krókaleyfisbátanna. Ef ég skildi hann rétt var hann að benda mér á þau einföldu sannindi að þarna væri verið að taka úr óskiptum potti með öðrum sem sækja þorsk í sjó. Það er alveg rétt. Málið er það að á yfirstandandi fiskveiðiári eru ætluð til úthlutunar 12.000 tonn vegna krókaleyfisbátanna en í þeim tillögum sem hv. þm. er að leggja fram er reiknað með að sá afli sé 22.000 tonn. Mismunurinn verður þá tekinn við úthlutun næsta fiskveiðiárs af aflahlut aflamarksbátanna sem getur þýtt um 8% skerðingu á þorskveiðiheimildum. Hv. þm. getur síðan reiknað út, af því að hann ræddi hér um kjör sjómanna, hvað það þýðir fyrir kjör til að mynda sjómanna á togurum.