Forseti (Salome Þorkelsdóttir)
:
Nú við afsögn hv. 7. þm. Reykn., Steingríms Hermannssonar, formanns Framsfl., hverfur af þingi sá stjórnmálamaður sem um tveggja áratuga skeið hefur verið í forustuhlutverki á Alþingi, átt hér sæti í samfellt 23 ár og verið meiri hluta þess tíma í ráðherrastörfum, lengst sem forsætisráðherra. Við þessi tímamót vil ég færa fyrir hönd Alþingis og alþingismanna Steingrími Hermannssyni þakkir fyrir þau störf sem hann hefur unnið á vettvangi Alþingis. Verka hans sér víða stað, en hann hefur sett sterkan svip á störf Alþingis á þingferli sínum.
Ég óska honum og fjölskyldu hans allra heilla í nýju starfi og endurtek þakkir okkar alþingismanna fyrir ánægjuleg kynni og ánægjulegt samstarf á undanförnum árum.