Vernd og veiðar á villtum fuglum og spendýrum

145. fundur
Föstudaginn 29. apríl 1994, kl. 15:26:37 (6849)


[15:26]
     Petrína Baldursdóttir (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Það stendur í skýrslu um embætti veiðistjóra að sameining á rannsóknarhlutverki veiðistjóra og Náttúrufræðistofnunar eigi að leiða til betri nýtingar á fjármunum og markvissari rannsóknum beggja stofnana.