Vernd og veiðar á villtum fuglum og spendýrum

145. fundur
Föstudaginn 29. apríl 1994, kl. 16:34:43 (6856)

     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Að þessu gefna tilefni vill forseti upplýsa að þessar umræddu brtt. geta ekki verið á dagskrá þar sem þær yrði að taka á dagskrá með afbrigðum. Það eru ekki nógu margir hv. þm. í húsinu til þess að möguleiki sé á að sú atkvæðagreiðsla fari fram þannig að þetta þskj. getur ekki verið til umræðu í dag. Auk þess hafði um það samist milli formanna þingflokka að umræðum yrði lokið upp úr 5, eins og orðað var, þar sem nú er að hefjast flokksfundur Framsfl. og að venju er ekki haldinn þingfundur meðan á honum stendur.