[11:20]
Jóhann Ársælsson :
Hæstv. forseti. Aðeins örfá orð. Ég vil fagna því að þessi till. til þál. er komin hér fram. Ég á sæti í sjútvn. og tók þátt í því að ræða málið þar og þessi niðurstaða varð þar samhljóða. Ég tel að þarna séu á ferðinni mál sem sé mjög nauðsynlegt að gefa gaum að. Atburðirnir í vetur í sambandi við veiði á síld til manneldis hafa líka sannað það sem hér hefur verið sett fram í þeim tillögum sem urðu undanfari þessarar tillögu, að það er mjög nauðsynlegt að fara yfir þessi mál í heildinni til að átta okkur á því hvaða möguleika við eigum í framtíðinni til að nýta sem allra best síldarstofna okkur til margs konar atvinnusköpunar. Þar er örugglega margt sem menn eiga eftir að vinna betur í og vonandi tekst að ná áfanga í þessu strax á næsta hausti eða vetri þannig að það verði komin betri skipan á þessi mál en verið hefur á undanförnum árum að næsta vetri liðnum.