Tryggingagjald

146. fundur
Mánudaginn 02. maí 1994, kl. 11:32:04 (6893)


[11:32]
     Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það er aðeins eitt smáatriði í framsöguræðu hv. þm. sem ég vil leiðrétta hér og nú. Það er að þeir kjarasamningar sem gerðir voru fyrir tæpu ári síðan gerðu aðeins ráð fyrir því að tryggingagjald af útflutningi félli tímabundið niður. Það hefði ekkert með það tryggingagjald og þær tryggingagjaldabreytingar að gera sem hér er verið að fjalla um og voru gerðar fyrir áramótin 1992/1993 og svo aftur 1993/1994. Þetta eru alveg tvö aðskilin mál.