[12:18]
Steingrímur J. Sigfússon (andsvar) :
Hæstv. forseti. Mér er ljóst að tryggingagjaldið rennur til markaðra verkefna sem reyndar eru talin upp í greinargerð, atvinnuleysistrygginganna, sjúkrahústrygginganna og fleiri þátta. En það breytir auðvitað ekki hinu að hægt er að mæta því tekjutapi með öðrum aðgerðum ef svo ber undir. Jafnframt er ljóst að ríkið er að greiða þar fyrir utan stórkostlega fjármuni inn í atvinnuleysistryggingarnar þannig að það er náttúrlega bókhaldsatriði í raun hvernig þeirra tekna er aflað og hvenær þær eru færðar. Ætli það vanti ekki sjálfsagt eina tvo milljarða eða svo a.m.k. inn í Atvinnuleysistryggingasjóð til að standa undir útgjöldum hans og þann halla ber ríkið lögum samkvæmt, ábyrgist greiðslurnar, eins og allir þekkja.
Varðandi þetta með samræmingu tryggingagjaldanna þá er sú hugsun svo sem alveg eðlileg og margt til í því, en það verður auðvitað að vera í samhengi við aðra þætti sem tengjast afkomu greinanna og stöðu þeirra. Það er hægt að samræma einn svona gjaldstofn án þess að það þurfi að valda nettóíþyngingu hjá viðkomandi grein. Það má hugsa sér að lagfæra þá starfsskilyrði hennar með öðrum hætti á móti o.s.frv. Og fram hjá einu verður auðvitað ekki horft að á sama tíma og menn telja ástæðu til að gera lagfæringar á starfskjörum einnar greinar eins og ferðaþjónustunnar og það er gott og hún er vaxandi grein og verður vonandi áfram. Þá er ekki sanngjarnt að skella þeirri íþyngingu yfir á aðrar greinar sem eru jafnvel að berjast við gífurlega erfiðleika eins og landbúnaðurinn er. Því er alveg ómótmælt að það er mikill samdráttur og miklir erfiðleikar í landbúnaðinum.
Það kann vel að vera skynsamlegt að skoða það að t.d. bændur, sjómenn, vörubílstjórar og vinnuvélaeigendur myndi einhvers konar sjálfstæðan hóp eða deild eða jafnvel alveg sjálfstæðan sjóð í þessu kerfi. En ég er hins vegar alveg andvígur því að menn gangi inn í þá umræðu út frá þeim grundvelli að þessir hópar eigi ekki að njóta réttindanna. Það verður að vera markmiðið að allar stéttir njóti þessara réttinda, ekki síst eins og atvinnuástandi er nú háttað í tíð atvinnuleysisstjórnar Davíðs Oddssonar, hæstv. forsrh.