[15:11]
Menntamálaráðherra (Ólafur G. Einarsson) :
Hæstv. forseti. Fyrsta spurning hv. þm. er: ,,Hversu miklu fé hefur verið varið til endurbóta á Þjóðminjasafninu frá því að viðgerð þess hófst og hvað hefur verið gert?``
Endurbygging húseignar Þjóðminjasafnsins við Suðurgötu hófst árið 1991. Fjárveitingar á þessu tímabili hafa verið sem hér segir: 1991 30 millj. kr., 1992 10 millj. kr., 1993 90 millj. kr. og 1994 30 millj. Samtals 160 millj. kr.
Það sem unnið hefur verið við er endurnýjun þaks og þakefna, glersteinsgluggar hafa verið endurnýjaðir, þakkantur og þakrennur uppbyggðar, lagðir loftræstistokkar, auk ýmissa tilfallandi smærri viðhaldsverkefna. Áfallinn kostnaður vegna undirbúnings og framkvæmda er þessi: Árið 1991 22,6 millj., auk 7,7 millj. kr. vegna undirbúningskostnaðar sem fór umfram heimildir 1990 eða alls 30,3 millj. 1992 21,3 millj., 1993 26,4 millj. Heildarkostnaður á þessu árabili er því 78 millj. kr. Til ráðstöfunar eru því nú á þessu ári 82 millj. kr., þ.e. fjárveiting 1994 og geymd fjárveiting frá fyrra ári.
Á þessu ári er stefnt að því að ljúka viðgerðum utan húss með útboði á endurnýjun glugga og endursteiningu útveggja. Talið er að þær fjárveitingar sem nú eru til ráðstöfunar muni duga til að ljúka því verki.
Í öðru lagi er spurt: ,,Hvaða skýring er á því að samningnum var rift við þær arkitekta- og verkfræðistofur sem undirbjuggu áætlanir um viðgerðir á Þjóðminjasafninu og önnuðust þær?``
Á árinu 1989 var skipuð nefnd til að undirbúa viðgerðir og endurbætur á húsakosti Þjóðminjasafns. Nefndin lét m.a. vinna frumáætlun um endurbætur og uppbyggingar sem kynnt var í júní 1990. Niðurstaða menntmrn. var sú að enda þótt í áætluninni kæmu fram áhugaverðir kostir þyrfti að leita nýrra leiða til lausnar á húsnæðismálum Þjóðminjasafns Íslands. Þetta var byggingarnefnd tilkynnt í lok nóvember 1992 og jafnframt var ákveðið að skipa nýja byggingarnefnd til að leita nýrra lausna. Hönnuðir og ráðgjafar fyrri byggingarnefndar voru eftirtaldir: Hjörleifur Stefánsson arkitekt, Gunnar St. Ólafsson verkfræðingur, Guðni A. Jóhannesson verkfræðingur, Sveinn Áki Sverrisson, á Verkfræðistofu Guðmundar og Kristjáns, og Jón Otti Sigurðsson, hjá Rafhönnun hf. Hjörleifur Stefánsson lét af störfum að eigin ósk sumarið 1991 og Guðni A. Jóhannesson fluttist af landi brott. Í stað Hjörleifs komu arkitektarnir Stefán Örn Stefánsson og Grétar Markússon til starfa hjá fyrri byggingarnefnd. Ekki var gerður bindandi samningur við hönnuði.
Ný byggingarnefnd var skipuð í byrjun febrúar 1993. Henni var falið að stjórna viðgerðum og endurbótum á húsnæði safnsins jafnframt því að gera tillögur um framtíðarskipan húsnæðismála. Nefndinni var falið að ráða hönnuði til starfa og leita tæknilegrar ráðgjafar eftir því sem þörf krefur. Byggingarnefnd ákvað að leita eftir ráðgjöf nýrra hönnuða við tillögugerð að nýjum lausnum. Því var ekki leitað eftir ráðgjöf hjá þeim arkitektum sem komu í stað Hjörleifs né heldur Gunnari St. Ólafssyni verkfræðingi. Að öðru leyti hefur hún nýtt sér þjónustu fyrrv. ráðgjafa.
Rétt er að taka það fram að ekki voru gerðir sérstakir bindandi samningar við hönnuði og er því ekki um það að ræða að samningum hafi verið rift. Nýrri byggingarnefnd var í sjálfsvald sett til hvaða hönnuða og ráðgjafa hún leitaði.
Þriðja spurning: ,,Hvað hafði arkitekta- og verkfræðistofunum verið greitt mikið fé áður en samningum var rift og hvað hafa þær fengið miklar skaðabætur hvor um sig?``
Þar sem ekki var um riftingu samninga að ræða hefur ekki komið til greiðslu skaðabóta. Nokkrir óuppgerðir reikningar voru við Gunnar St. Ólafsson vegna vinnu hans fyrir fyrri byggingarnefnd. Þau mál voru gerð upp og þeim lokið með sérstöku samkomlagi. Heildargreiðslur til Gunnars, sem ná allt aftur til ársins 1989, nema 5.964.895 kr. með virðisaukaskatti. Heildargreiðslur til Stefáns Arnar Stefánssonar og Grétars Markússonar, teiknistofunnar Skólavörðustíg, greiddar á árunum 1990--1992, námu 1.242.496 kr.
Síðasta spurning: ,,Eftir hvaða áætlun er nú unnið að viðgerðum við Þjóðminjasafnið og hvaða aðilar hafa verið ráðnir til að annast þær í stað þeirra sem samningum var rift við?``
Eins og áður var skýrt frá verður í sumar unnið að því að endurnýja glugga og endursteiningu útveggja. Verður unnið að því verkefni í samræmi við áætlun sem byggð er á ráðgjöf verkfræðistofunnar Línuhönnunar, Ögmundar Skarphéðinssonar arkitekts og sérfræðinga Framkvæmdasýslunnar. Ekki hafa verið gerðir formlegir bindandi samningar við hönnuði eða ráðgjafa.