Sala ríkisins á SR-mjöli

148. fundur
Mánudaginn 02. maí 1994, kl. 21:47:42 (6990)


[21:47]
     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég hygg að hv. þm. viti það jafn vel og ég að auðvitað kom það ekki til greina að Akureyrarbær einn keypti Síldarverksmiðjur ríkisins. Auðvitað kom það ekki til greina eins og þær lögðu sig. Þeir fjármunir sem til þess hefði þurft væru slíkir að auðvitað kom það ekki til greina eins og á stóð.