Sala ríkisins á SR-mjöli

148. fundur
Mánudaginn 02. maí 1994, kl. 22:52:52 (7004)


[22:52]
     Tómas Ingi Olrich (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Aðeins örstutt. Um það atriði málsins hvort það hefði verið skynsamlegra að bíða lengur til þess að sjá hvort markaðsstaða fyrirtækisins batnaði er hægt að deila endalaust. Ég held að það þjóni ekki miklum tilgangi í þingsölum að fara að deila um þetta atriði. Ég er þeirrar skoðunar að tímasetningin á þessu hafi verið rétt.