Vernd og veiðar á villtum fuglum og spendýrum

148. fundur
Þriðjudaginn 03. maí 1994, kl. 01:40:53 (7060)

     Forseti (Sturla Böðvarsson) :
    Forseti vill taka undir það sem hv. þm. nefndi að það er mikilvægt að ná góðu samkomulagi, enda tel ég að síðustu daga og síðustu vikur hafi verið leitað náins samstarfs og samkomulags um þinghaldið og reynt að koma til móts við þær aðstæður sem hafa verið í þinginu. Forseti lítur því svo á að að sjálfsögðu verði reynt að gera það áfram.