[01:59]
Finnur Ingólfsson (um fundarstjórn) :
Virðulegi forseti. Það kom fram í máli hv. þm. Rannveigar Guðmundsdóttur að það væri samkomulag um þetta mál í umhvn. Ég þarf að fá upplýsingar um það hjá hv. þm. hvar hún fær þær upplýsingar að það sé samkomulag um málið í nefndinni. Það var fundur í nefndinni kl. 7 í kvöld þar sem ég mætti fyrir Jón Helgason þar sem hann var fjarstaddur. Ég gerði þar allan fyrirvara við þetta mál og sagðist ekki styðja þær brtt. sem væru boðaðar þó að ég teldi þær til bóta við frv., enda, eins og kom fram hjá hv. formanni nefndarinnar, eru þær ekki fluttar af nefndinni. Þær eru fluttar af formanni nefndarinnar. Málið var upphaflega með fyrirvörum allra þeirra manna er í umhvn. sátu þegar það kom til 2. umr. Það var leitað eftir samstöðu í kvöld um ýmsar breytingartillögur. Samstaða er ekki meiri en sú að það er formaður nefndarinnar sem flytur málið. Þess vegna hefði ég gaman að vita hvar það hefur komið fram að um þetta mál væri samkomulag í umhvn.
Ég skil það heldur ekki, sem fram kom hjá hv. 15. þm. Reykv., formanni umhvn., að það sé svo nauðsynlegt að mæla fyrir og afgreiða málið til 3. umr. akkúrat á þessum fundi í skjóli nætur. Það verður formaður nefndarinnar að skýra.