Vernd og veiðar á villtum fuglum og spendýrum

148. fundur
Þriðjudaginn 03. maí 1994, kl. 02:08:37 (7074)

     Forseti (Sturla Böðvarsson) :
    Forseti vildi nú freista þess að ná einhverju samkomulagi um framhaldið á fundinum og mun gera 5 mínútna hlé á fundinum og vildi biðja formenn þingflokka að koma til skrifstofu forseta til þess að ræða um framgang mála. [Fundarhlé. --- 02:12]
    Það hefur orðið sú niðurstaða hjá forseta að gera ráð fyrir því að ljúka þessari umræðu á þessum fundi með því að vera eina klukkustund til viðbótar og sjá til hvernig tekst að þoka þessu máli fram. Forseti væntir þess að það megi ná nokkrum árangri með því og þingmenn virði þá ákvörðun forseta.