Stjórn fiskveiða

149. fundur
Þriðjudaginn 03. maí 1994, kl. 17:06:53 (7129)


[17:06]
     Gísli S. Einarsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Aðeins örstutt svar við þessu. Ég er alveg sannfærður um að umbætur í vegakerfinu á Íslandi voru ekki gerðar til að flytja fisk frá Faxaflóa á Hornafjörð eða frá Suðurnesjum til Akureyrar eða frá Akranesi eða Snæfellsnesi til Sauðárkróks. ( JGS: Til hvers þá?)