[18:23]
Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
Virðulegur forseti. Með tilliti til yfirlýstrar stefnu Alþfl. um að fiskveiðum beri að stjórna með veiðigjaldi eða auðlindaskatti, ef menn vilja orða það þannig, þá langar mig til að fá aðeins betri skilning á annars ágætri ræðu hv. þm. áðan og spyrja hv. þm. beint hvort ég skilji hann rétt að þingmaðurinn sé fylgjandi því að við beitum áfram kvótakerfi með aflamarki við stjórn fiskveiða hér á landi.
Í öðru lagi varðandi það sem hv. þm. ræddi um tonn á móti tonni viðskipti. Er það réttur skilningur á skoðunum þingmannsins að þær séu að þessi viðskipti séu eðlileg og geti verið báðum aðilum hagkvæm ef farið er eftir settum reglum?