Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
Borist hefur eftirfarandi bréf, dags. 3. maí 1994:
,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með vísan til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþm. Samtaka um kvennalista í Reykv., Guðrún J. Halldórsdóttir skólastjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegur forseti.
Guðrún J. Halldórsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa.