[13:53]
Ólafur Ragnar Grímsson:
Virðulegi forseti. Það er auðvitað mjög merkilegt að ríkisstjórnin skuli hafa kosið að dreifa þessari skýrslu daginn eftir að þjóðin hlustaði á uppgjörsumræður hér á þinginu. Það er auðvitað alveg ljóst að þingmenn Alþfl. og forsrh. hefðu ekki getað farið með þulur sínar í gærkvöldi um blóm í haga, vor í lofti og batnandi hag ef þessi skýrsla hefði legið á borðum þingmanna. Auðvitað hefur skýrslan verið tilbúin fyrir umræðuna, en það er alveg greinilegt að forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar hafa kosið að sýna ekki þetta plagg fyrr en þessi helsta umræða seinni hluta þingsins væri liðin.
Hæstv. forseti lýsti því áðan að það þyrftu að fara fram einhverjar umræður um utandagskrárumræðu um þessa skýrslu á þeim stað sem þær fara fram, á skrifstofu forseta. Það er misskilningur hjá hæstv. forseta. Þingsköpin eru ekki bara þingsköp, þau eru lög í landinu. Og það stendur alveg skýrt í 46. gr. þessara laga með leyfi forseta:
,,Ef ráðherra eða skýrslubeiðendur, einn eða fleiri, óska þess skal skýrslan tekin til umræðu. Ráðherra gerir þá grein fyrir henni.``
Það er þess vegna ekkert á valdi forseta að neita þessari umræðu. Það er skýrt ákvæði í lögum íslenska lýðveldisins að umræðan skal fara fram. ( GÁ: Og hvenær félmrh. skal koma með ...) Jafnframt eru ákvæði um það hvenær skýrslunni skuli skilað, en þau eru ekki hér til umræðu. Nú liggur skýrslan fyrir og þess vegna tel ég að forseti þingsins hafi ekkert vald til þess að setjast að samningaborði með hv. þm. Guðna Ágústssyni um það hvort þessi umræða fari fram eða hvort um utandagskrárumræðu verði að ræða. Það verður engin utandagskrárumræða. Ef hv. þm. Guðni Ágústsson, eins og hann hefur gefið til kynna, óskar eftir því þá dugir samkvæmt 46. gr. laganna að einn þingmaður óski eftir því. Þess vegna, virðulegi forseti, er málið alveg skýrt. Hv. þm. Guðni Ágústsson hefur óskað eftir því að það fari fram umræða um skýrsluna og þá er lagaskylda forseta að láta þá umræðu fara fram. Og eins og hér hefur komið fram þá er það eindregin ósk Alþb. að forseti lúti þessari lagagrein og þessi umræða fari fram hið fyrsta.
Skýrsla um skuldastöðu heimilanna
152. fundur
Fimmtudaginn 05. maí 1994, kl. 13:53:01 (7294)