Húsaleigubætur

152. fundur
Fimmtudaginn 05. maí 1994, kl. 22:24:09 (7334)


[22:24]
     Frsm. minni hluta félmn. (Kristinn H. Gunnarsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það má vel vera að hv. 6. þm. Vestf. þyki það tíðindi ef málflutningur þingmanna Alþb. og Sjálfstfl. fellur saman. Ég mun svara þessu í framsöguræðu minni á eftir og læt því hjá líða að taka þá umræðu í andsvörum. En ég minni hv. 6. þm. Vestf. á það, sem ekki stendur í frv., að það kostar peninga og það eru einhverjir sem eiga að borga. Hv. þm. ætti að kynna sér hvar meiningin er að skera niður og hjá hverjum til að afla fjár til málsins.