Húsaleigubætur

152. fundur
Fimmtudaginn 05. maí 1994, kl. 23:30:14 (7361)


[23:30]

     Sturla Böðvarsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það sem hv. 4. þm. Reykn. nefndi hér er allt saman hárrétt og undirstrikar það sem ég hef verið að segja að það er afar mikilvægt að sveitarfélögin sem sjá um m.a. þessa fyrirgreiðslu sem þingmaðurinn var að nefna hér séu höfð með í ráðum og séu fylgjandi þeirri löggjöf og styðji þá löggjöf sem verið er að setja og á að bæta enn frekar úr stuðningi hins opinbera við þá sem eru á húsaleigumarkaði og hafa lágar tekjur. Það er meginatriði þessa máls þannig að ég tek undir það sem hv. þm. sagði og ég held að það sé allt saman hárrétt.