Tryggingagjald

152. fundur
Föstudaginn 06. maí 1994, kl. 01:58:33 (7399)


[01:58]
     Svavar Gestsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Við erum að sjálfsögðu ekki í neinum réttarhöldum hér en ég bendi bara á það að þau rök sem hæstv. fjmrh. var með standast ekki af því að um er að ræða þjónustu við fyrirtækin áður en útflutningsvaran verður til. Það er allt annað mál heldur en það sem ég er hér að tala um sem á við endurgreiðslu á tryggingagjaldi af útflutningsafurðinni eftir að hún er orðin til. Ég tel að það sé þó nokkur munur á því hvort um er að ræða þjónustu sem veitt er útflutningsfyrirtækinu eða útflutningsvöruna eftir að hún hefur verið framleidd.