Vernd og veiðar á villtum fuglum og spendýrum

152. fundur
Föstudaginn 06. maí 1994, kl. 02:11:26 (7405)

     Forseti (Sturla Böðvarsson) :
    Forseti vill ítreka það sem fyrr var sagt á þessum fundi að það er meiningin að freista þess að ljúka umræðu um 3. dagskrármálið. Hv. 5. þm. Reykv. hafði ekki lokið ræðu sinni og forseti vildi beina því til hv. þm. að taka þeirri ósk forseta að fram verði haldið þessum fundi þannig að hægt verði að ljúka umræðu um þetta dagskrármál.