Vernd og veiðar á villtum fuglum og spendýrum

152. fundur
Föstudaginn 06. maí 1994, kl. 02:29:24 (7415)

     Forseti (Sturla Böðvarsson) :
    Vegna orða hv. þm. þá gat forseti þess að meiningin er að reyna að freista þess að ljúka umræðunni. Það eru þrír hv. þm. á mælendaskrá og forseti væntir þess að með tilliti til þess hversu ítarleg umræða hefur farið fram um þetta mál þá verði ekki um mjög langa umræðu að ræða. En hv. 5. þm. Reykv. var í miðri ræðu og tekur þá til máls.