[10:16]
Kristinn H. Gunnarsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Mér finnst því miður að rökin á bak við flutning á brtt. séu fátækleg. Það eru auðvitað engin rök að segja: Þetta er svona í öðrum lögum. Hins vegar er mér alveg ósárt um að þetta standi í lögunum, en að mínu viti er þetta núll-ákvæði, gagnslaust ákvæði, því auðvitað semja engin sveitarfélög um sameiginlegan rekstur nema semja um yfirstjórnina. Ég átta mig því ekki á því hvaða þörf menn telja á því að lögfesta þetta ákvæði, fyrir hvern það er. Um þetta ákvæði mætti þá helst finna að að menn séu þarna að ganga inn á verksvið sveitarstjórnarmanna sem þeim er með lögum ætlað að gera. Það er eins og menn treysti þeim ekki til þess að ganga frá þessu verki með sómasamlegum hætti.
Að öðru leyti ætla ég ekki að hafa fleiri orð um þetta ágæta frv., en mér finnst að menn séu þarna að ósekju að hafa inni í svona frumvörpum hluti sem eiga þangað ekkert erindi. Menn eiga að treysta sveitarstjórnarmönnum fyrir þeim verkefnum sem þeim eru falin, annars eiga þeir ekkert að vera að láta þá hafa þau.