Þjóðminjalög

153. fundur
Föstudaginn 06. maí 1994, kl. 12:14:02 (7461)


[12:14]
     Frsm. meiri hluta menntmn. (Sigríður A. Þórðardóttir) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Hv. þm. Kristín Ástgeirsdóttir gerði að sérstöku umtalsefni deildaskiptingu Þjóðminjasafnsins. Ég vek athygli á brtt. frá meiri hluta menntmn. þar sem segir: ,,Um deildaskiptingu safnsins skal mælt fyrir í reglugerð að fengnum tillögum þjóðminjaráðs.`` Þar eru tekin af öll tvímæli um það að Þjóðminjasafnið skuli vera deildaskipt í framtíðinni.