Flutningur tónlistar og leikhúsverka í sjónvarpi

153. fundur
Föstudaginn 06. maí 1994, kl. 12:25:40 (7466)


[12:25]
     Frsm. menntmn. (Sigríður A. Þórðardóttir) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. og brtt. menntmn. um till. til þál. um flutning verka Þjóðleikhússins og Sinfóníuhljómsveitar Íslands í ríkissjónvarpinu.
    Nefndin hefur fjallað um tillöguna sem hvetur til þess að unnið verði að flutningi verka Þjóðleikhússins og Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Ríkisútvarpi, sjónvarpi, auk þess sem athugað verði hvernig starfsemi þessara stofnana fái að öðru leyti sem best náð til allra landsmanna.
    Nefndin styður þau sjónarmið sem tillagan byggist á og leggur til að hún verði samþykkt með breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali. Fram kom í umsögnum þeirra sem til þekkja að upptökur leikhúsverka og annarra menningarviðburða fyrir sjónvarp krefðust talsverðs undirbúnings. Útsendingarnar sjálfar væru einnig kostnaðarsamar og í því efni þyrfti m.a. að gæta reglna um höfundarrétt. Nefndin telur því að málið þarfnist frekari skoðunar og leggur til að tillögunni verði breytt þannig að ráðherra gefist svigrúm til að kanna alla þætti málsins vel. Þá er lagt til að tillagan einskorðist hvorki við Þjóðleikhúsið, Sinfóníuhljómsveit Íslands né Ríkisútvarpið.
    Björn Bjarnason var fjarstaddur við afgreiðslu málsins.