Húsaleigubætur

153. fundur
Föstudaginn 06. maí 1994, kl. 16:32:10 (7504)


[16:32]
     Sturla Böðvarsson :
    Virðulegi forseti. Allt frá því að frv. um húsaleigubætur kom til umræðu hef ég gert athugasemdir og fyrirvara um efni frv. og lagt mjög ríka áhersla á það að á því yrðu gerðar breytingar sem tryggðu framkvæmd frv. ef að lögum yrðu.
    Í ljósi þeirra yfirlýsinga sem hæstv. forsrh. og hæstv. félmrh. hafa gefið við þessa umræðu vil ég lýsa því yfir að ég mun styðja frv. og ég fagna því að þessi niðurstaða skuli hafa fengist hér í dag.