[16:54]
Ólafur Þ. Þórðarson :
Herra forseti. Í Byggðastofnun var unnið mikið sáttastarf til samræmingar á sjónarmiðum þegar unnið var að byggðaáætlun og mér er það því nokkur raun að sjá að þegar kemur að þeim lið að byggðamál kosta peninga, þá leggja menn til lækkun hér í þinginu. Ég segi því nei við þessari breytingartillögu.