[17:52]
Anna Ólafsdóttir Björnsson :
Virðulegi forseti. Hér er verið að fella út eitt af því fáa sem til bóta mátti telja í tillögum tvíhöfða nefndar og síðan í því frv. sem lagt var fram um stjórn fiskveiða, þ.e. vísi að byggðakvóta, það að geta tengt kvóta við fiskvinnslu. Ég tel það mjög miður ef menn eru ekki reiðubúnir til að fylgja sannfæringu sinni eftir og minni á það að hér hafa ýmsir þingmenn lýst því yfir að þeir vildu gjarnan sjá þennan fiskvinnslukvóta koma á og ég skora á þá að fylgja sannfæringu sinni hér og góðum ráðum sem víða hafa komið. Ég greiði því atkvæði gegn því að 7. gr. falli brott.