[09:19]
Vilhjálmur Egilsson :
Virðulegi forseti. Kjaradeila verður ekki leyst í þingsölum. Þannig hefur það ekki verið og mun aldrei verða. En fjmrh. fer með samninga og mér finnst að hér sé ómaklega vegið að hæstv. heilbrrh. Það er ekki venja að ráðherrar sitji samningafundi hvort sem það er heilbrrh. eða fjmrh. og jafnvel þó hæstv. heilbrrh. hafi farið úr landi á nauðsynlega fund, þá vil ég vekja athygli hv. þm. á því að það er búið að finna upp símann og telefaxtæki.