Vernd og veiðar á villtum fuglum og spendýrum

154. fundur
Laugardaginn 07. maí 1994, kl. 10:05:33 (7582)

     Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
    Forseti telur rétt að það komi fram að samkvæmt starfsáætlun Alþingis átti Alþingi að vera frestað

fyrir viku síðan þannig að það mun kannski hafa eitthvað með það að gera að hæstv. ráðherrar hafa skipulagt sín störf þannig að þeir gætu farið úr landi í þessari viku. ( GHelg: Það sama gæti nú gilt um þingmenn.) ( ÓRG: Fjöldi þingmanna hefur orðið að breyta áformum sínum.) Það reyndar vill svo til að forseti veit til þess að svona er einnig háttað um einstaka þingmenn. En forseti hefur nú tekið þá ákvörðun að fresta umræðu um þetta mál um sinn.