Leikskólar

154. fundur
Laugardaginn 07. maí 1994, kl. 10:39:14 (7588)


[10:39]
     Petrína Baldursdóttir (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Ég ítreka það sem ég sagði áðan að ég tel að þetta frv. fjalli ekki um menntun leikskólakennara. Við erum ekki að ræða um menntun leikskólakennara. Ég tel því að þessi brtt. sé ekki á réttum stað. Og ég ítreka þá skoðun mína, eins og kom fram áðan, að þessi starfsmannafélög víðs vegar um land hafa séð um fræðslu fyrir ófaglært starfsfólk á leikskólum og ég tel að þau geti gert það áfram án þess að þetta komi inn í lög um leikskóla.