[10:59]
Ólafur Ragnar Grímsson (um fundarstjórn) :
Virðulegi forseti. Þessar ávítur hv. þm. Tómasar Inga Olrich gagnvart hv. þm. Ólafi Þ. Þórðarsyni voru fullkomlega út í hött. Hv. þm. Ólafur Þ. Þórðarson var að ræða sérstakt ákvæði sem er í því frv. sem hér er til 3. umr. og var að vekja athygli á því að það ákvæði kynni að stangast á við mannréttindasáttmála eins og hv. þm. Björn Bjarnason tók hér til umræðu. Hins vegar verð ég að segja það við hv. þm. Björn Bjarnason . . . (Gripið fram í.) Jú, jú, hv. þm., ef þingmaðurinn getur bara beðið rólegur og ég fái að ljúka setningunni án þess að gripið sé fram í þá finnst mér það sérkennilegt að standa hér upp í andsvörum og hóta því að stjórnarfrumvörp verði ekki afgreidd hér. Ég veit ekki hvaða vald þingmaðurinn hefur til þess að hafa þannig áhrif á stjórn þingsins, að vegna þess að honum mislíki við eina ræðu hér og þoli ekki efnisatriði hennar þá fari hann að hóta því að frumvörp séu ekki afgreidd, sami þingmaður og stóð hér upp fyrir um það bil sólarhring síðan og fór að mótmæla stjfrv. sem varð svo til þess að forsrh. og félmrh. gáfu hér sérstaka yfirlýsingu sem þingmaðurinn þakkaði fyrir með sérstöku þakkarávarpi. Hér er annar þingmaður að fara fram á það að annað stjfrv. sé leiðrétt og þeim einstaklingum, íslenskum, sem hafa önnur trúarbrögð en kristna trú ( Gripið fram í: Það er búið að fella þetta.) sé veittur sá sjálfsagði . . . (Gripið fram í.) Hv. þingmenn Sjálfstfl. eru hvað eftir annað að gjamma hér fram í um það að búið sé að fella þetta. Það er gaman að þingmenn Sjálfstfl. skuli segja að af því að það sé búið að fella leiðréttingu gagnvart mannréttindum þá skuli óréttlætið blífa. Annað eins hefur nú gerst hér á þinginu að menn hafa séð að sér við 3.
umr. Það er hægt að nefna fjölmörg dæmi um það að menn hafi séð að sér við 3. umr. Hvílíkur hroki í afstöðu þessara þingmanna Sjálfstfl. sem hér kemur fram. ( TIO: Má vænta þess að tillaga komi fram?) Hún kann nú að koma fram, hv. þm., umræðan er rétt að byrja. Þannig að þó ekki hafi komið fram brtt. nú þegar þá er samkvæmt þingsköpum hægt að flytja þá brtt. hvenær sem er ef afbrigði eru veitt. ( Gripið fram í: Þegar búið er að fella það?) Það er hægt að umorða brtt. með margvíslegum hætti.
Mér finnst nú leiðinlegt, forseti, að ég þurfi að nota minn tíma til þess að svara þessum sífelldum frammíköllum þessara tveggja þingmanna Sjálfstfl., sem bera vissa ábyrgð á erlendum vettvangi fyrir hönd Alþingis, annar hjá Evrópuráðinu og hinn á þeim vettvangi þar sem Evrópuþjóðirnar komu sér saman um sáttmála til að tryggja mannréttindi og lýðræði og að þeir tveir skuli vera hér fremstir í flokki til þess að koma í veg fyrir að þeir einstaklingar á Íslandi, sem eiga börn, sem játa ekki kristna trú, eigi rétt á því að í þeirra skólum sé siðferðisgrundvöllur þeirra trúarbragða sem fjölskyldan aðhyllist líka virtur.
Ég skora nú á þessa þingmenn og menntmrh. að hafa vit til þess að leita samkomulags um það að gerð verði breyting á leikskólafrv. hér við 3. umr. til þess að sjálfsagður réttur þeirra Íslendinga, sem ekki aðhyllast kristna trú, til að geta alið börn sín upp á siðferðisgrundvelli þeirra eigin trúarbragða, verði virtur.