[11:03]
Svavar Gestsson (um fundarstjórn) :
Virðulegi forseti. Satt að segja ber þessi morgunstund með sér að það sé ætlunin að reyna að ljúka þinginu kannski á þessum sólarhring og menn eru nokkuð trekktir finnst mér, stjórnarliðar, og viðkvæmir fyrir minni háttar málum. Ég bendi á í þessu sambandi, varðandi það mál sem hér hefur verið nefnt að það væri kannski sniðugt að leyfa hæstv. menntmrh., sem er í fyrirsvari fyrir málaflokkinn, að svara, áður en hv. þm. Tómas Ingi Olrich og Björn Bjarnason taka að sér að svara fyrir hann. Hann er þó með stólinn enn þá. Þannig að mér þætti það sniðugt kerfi að ráðherrann fengi kannski bara allt í einu að svara og athuga hvað kemur út úr því og spjalla svo um hlutina áfram í stað þess að hlaupa í hnút hér á fallegum vormorgni með þeim hætti sem hv. þingmenn hafa gert.
Það mál sem hér er um að ræða er samkomulagsmál í nefndinni og þó að það komi upp mál við 3. umr. þá er ekkert við því að segja. 3. umr. er til þess að fram haldi efnisumfjöllun um málið. Það að mál sem er fellt við 2. umr. sé rætt er að sjálfsögðu mjög algengt vegna þess að 3. umr. er uppgjör eftir 2. umr. þar sem menn ræða m.a. um það hvaða afleiðingar afgreiðslan við 2. umr. hefur á lokameðferð málsins. Og að ætla sér að segja að það sé bundið fyrir talfærin á mönnum um tiltekin mál sem hafa verið felld við 2. umr. jafngildir auðvitað því að afnema lýðræði hér í stólnum við 3. umr. nema um þá hluti sem alls ekki voru nefndir við 2. umr. Þetta gengur auðvitað ekki eins og hv. þm. sjá, sem eru greindir þingmenn ef þeir smella sér út úr geðvonskuhamnum sem allt í einu rann á þá hér í morgun. Ég held að það væri skynsamlegt fyrir þróun þessarar umræðu að hæstv. menntmrh. fengi að svara og síðan sjá menn hvernig þessu mikilvæga máli þokar fram.
Varðandi síðan þá tillögu sem hér er uppi og hefur einnig verið nefnd í andsvörum, varðandi menntun annarra starfsstétta, þá tel ég að það sé mál sem menn eigi líka að ræða í rólegheitum en ekki að kasta sér út í einhvern flaum kergju þegar um jafnmikilvægt mál er að ræða og það sem hér er uppi.