[11:24]
Ólafur Ragnar Grímsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ein af þeim breytingum sem orðið hafa á íslensku þjóðfélagi á síðari árum er að það er vaxandi fjöldi foreldra og barna sem aðhyllist ekki kristna trú en aðhyllist önnur trúarbrögð sem hafa ekki síður mikilvægan siðferðisgrundvöll heldur en kristin trú. Eins og frv. er nú orðað er lögð sú kvöð á leikskólann að efla --- og ég legg áherslu á það orð --- að efla kristilegt siðgæði barna. Þar með á leikskólinn sem stofnun að efla trúarlegt siðgæði barna sem aðhyllast ekki þá trú. Það höfum við sum sagt hér að stangist á við grundvallarhugsun nútímamannréttinda. Og það er engin hótfyndni og það er engin töf á umræðum hér, það er grundvallaratriði. Ef textinn væri orðaður með ýmsu öðru móti, eins og að kynna eða annað slíkt, þá væri hægt að líta á málið með öðrum hætti en hér er lögð sú kvöð á leikskólann að efla.
Ég vil þess vegna spyrja hæstv. menntmrh. hvort hann sé reiðubúinn að gefa yfirlýsingu um það að við útgáfu reglugerðar verði tekið alveg skýrt fram að börn sem aðhyllast önnur trúarbrögð muni eiga jafnan rétt á því að siðferðisgrundvöllur þeirra trúarbragða verði lagður til grundvallar í framgöngu leikskólans hvað uppeldi þeirra snertir.