[11:44]
Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) :
Virðulegi forseti. Ég vil upplýsa um nefndina sem um er spurt að hæstv. heilbr.- og trmrh. hefur skrifað bréf, dags. 5. maí, þar að lútandi um þessa nefndarskipun og þar kemur fram að nefndin verður skipuð fulltrúum þeirra stjórnarflokka sem fulltrúa eiga á Alþingi ásamt fulltrúa heilbrrn. sem verður formaður nefndarinnar. Samkvæmt þessu bréfi á nefndin að skila niðurstöðu fyrir 1. sept. 1995.