Stjórnarskipunarlög

154. fundur
Laugardaginn 07. maí 1994, kl. 12:13:51 (7623)


[12:13]
     Frsm. stjórnarskipunarnefndar (Sólveig Pétursdóttir) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti á þskj. 1028 um frv. til stjórnarskipunarlaga um breytingu á stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, nr. 33 17. júní 1944, með síðari breytingum.
    Á fundi sínum 29. mars kaus Alþingi sérnefnd, sbr. 32. gr. þingskapa, til að fjalla um frumvarp þetta sem felur í sér að 28. gr. stjórnarskrárinnar, sem veitir heimild til útgáfu bráðabirgðalaga, falli brott.
    Á fundi nefndarinnar kom fram að bráðabirgðalagaákvæði stjórnarskrárinnar er eitt þeirra atriði sem eru til umfjöllunar á vettvangi stjórnarskrárnefndar sem skipuð er fulltrúum þingflokkanna. Með hliðsjón af því að stutt er til þingloka og að málið er til umfjöllunar í stjórnarskrárnefnd þykir heppilegt að ríkisstjórnin feli stjórnarskrárnefnd að fjalla um þá tillögu sem felst í frumvarpinu. Nefndin leggur því til að frumvarpinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.
    Guðmundur Bjarnason, Kristín Einarsdóttir og Sigurður Hlöðvesson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en undir nefndarálitið rita nöfn sín auk mín Matthías Bjarnason, Sigríður A. Þórðardóttir, Páll Pétursson, Geir H. Haarde og Gunnlaugur Stefánsson.