Forseti (Salome Þorkelsdóttir)
:
Forseti vill upplýsa að það er venja að raða dagskrá upp með þeim hætti sem hér er gert. Þegar atkvæðagreiðslur eru á dagskrá þá eru þær settar fremst en mjög algengt er að þeim sé frestað þar til t.d. eftir hádegisverðarhlé. Þetta á hv. þm. að vita. Um viðveru þingmanna, þá eru samkvæmt töflu 17 stjórnarliðar í húsinu og 9 stjórnarandstæðingar. Það er gert ráð fyrir því samkvæmt dagskránni að byrja á sjávarútvegsmálum og hæstv. sjútvrh. er kominn til fundar.