[11:39]
Jóhann Ársælsson (andsvar) :
Hæstv. forseti. Hv. 4. þm. Norðurl. v. ræddi um að það þyrfti að þróa áfram aðferðir í sambandi við það að vinna við uppþíddan fisk. Það getur vel verið og ég mótmæli því ekki í neinu og tel skynsamlegt hjá honum að nefna þá hluti. Hins vegar var það ekkert svar við því af hverju hv. framsóknarmenn greiddu atkvæði gegn tillögu um það að fresta um eitt ár því að menn gætu verið að kaupa hér fullvinnsluskip eftir að hafa flutt hér ræðu eftir ræðu þar sem þeir voru að mótmæla því að ríkisstjórnin væri að setja fram tillögur sem yrðu til þess að þessi þróun mundi halda áfram og hafa af því hinar mestu áhyggjur. Það var ekki verið að leggja til að það yrði bannað til frambúðar að smíða fullvinnsluskip eða kaupa heldur einungis að menn tækju sér tíma til þess að skoða þessa möguleika sem gætu verið á því að hafa áhrif á þessa þróun með það fyrir augum að heildarhagsmunir þjóðarinnar yrðu tryggðir.