Skuldastaða heimilanna

157. fundur
Þriðjudaginn 10. maí 1994, kl. 15:46:09 (7843)


[15:46]
     Eggert Haukdal (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Í orðum mínum hér áðan þegar ég var að hrósa hv. foringjum Framsfl. fyrir hvernig þeir hafa staðið að þessu frv. mínu, þá láðist mér að geta þess að hv. þm. Steingrímur Sigfússon hefur staðið vel að því að afgreiða málið út úr nefndinni. Sömuleiðis hv. þm. Ingi Björn Albertsson, sem hér er inni staddur, en þeir hafa ekki náð því að koma frv. út. Þarna virðist hafa verið og er við ofurefli að etja. --- Reyndar sé ég þriðja mann inni í sal, hv. þm. Guðjón Guðmundsson, sem einnig hefur staðið að því að vilja koma frv. hér til atkvæða, en það hefur ekki tekist.