Skuldastaða heimilanna

157. fundur
Þriðjudaginn 10. maí 1994, kl. 16:23:07 (7853)


[16:23]
     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég hef það eitt um þennan málflutning þessa málsvara Alþb. að segja að það er fróðlegt fyrir íbúðarkaupendur að hlusta á þennan málflutning vegna þess að hv. þm. er ekkert annað að boða en að draga úr aðstoð við íbúðarkaupendur. Lækka lán til þeirra, það er það sem má skilja á hans málflutningi.