[16:38]
Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Hv. þm. bar hér saman húsnæðisstefnu þá sem Alþfl. hefur staðið fyrir og húsnæðisstefnu Alþb. Ég er alveg sannfærð um að sú húsnæðisstefna sem Alþfl. hefur staðið fyrir stenst vel samanburð við húsnæðisstefnu Alþb. Við skulum muna eftir því þegar Alþb. fór með húsnæðismálin í upphafi níunda áratugarins. Hvernig var þá ástatt í félagslega kerfinu? Hvað var miklu eytt þar í uppbyggingu á félagslegum íbúðum? Það voru sárafáar íbúðir sem voru byggðar og ég hygg ekki ein einasta leiguíbúð. Beri hv. þm. það saman við 500 íbúðir sem hafa verið byggðar hér á hverju einasta ári og 700 leiguíbúðir við 60--70 leiguíbúðir á sjö árum þar á undan.
Og hvert var lánshlutfallið þá? Ætli það hafi ekki verið um 20% eða innan við það. Og lánstíminn var sextán ár. Þetta bauð Alþb. ungu fólki upp á og það hugsaði ekki betur um félagslega kerfið heldur en raun ber vitni.
Og talandi um vaxtabætur, sem hv. þm. gerði, ef bornar eru saman vaxtabætur sem hlutfall af vaxtagjöldum hjá láglaunafólkinu, fólki með innan við 2 millj. í tekjur, þá er það hærra á árinu 1993 en á árinu 1991 og gæti ég fært fram tölur því til sönnunar og mun gera það síðar í þessari umræðu sem ekki er tóm til í stuttu andsvari hér.
Varðandi hækkun vaxta almennt sem hv. þm. talaði um þá hafa vextir lækkað. Þeir hækkuðu í upphafi þessa kjörtímabils en af hverju hækkuðu þeir í upphafi þessa kjörtímabils? Vegna þess að fyrrv. fjmrh., Ólafur Ragnar Grímsson, kaus að safna skuldum í Seðlabankanum þó hann vissi að það þyrfti að viðurkenna að það væri vaxtahækkunartilefni sem hann þorði ekki í vegna kosninganna. Þess vegna þurfti að fara í hækkun á vöxtum í byrjun þessa kjörtímabils. En vextir hafa lækkað verulega.
Og vegna affalla í húsbréfakerfinu þá veit hv. þm. að afföllin voru mikil þegar við vorum að komast út úr 86-kerfinu og þurftum að vera í miklum greiðsluerfiðleikalánum vegna skammtímalána sem komu í kjölfar 86-kerfisins. Hv. þm. ætti að bera það saman við þann stöðugleika sem nú er.