Skuldastaða heimilanna

157. fundur
Þriðjudaginn 10. maí 1994, kl. 17:37:27 (7878)


[17:37]
    Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Hv. þm. sagði að skuldir heimilanna hefðu aukist gífurlega, ekki síst í tíð þessarar ríkisstjórnar. Tölur sem við höfum verið að ræða í dag segja okkur samt að þegar maður skoðar skuldirnar hvernig þær hafa breyst að raungildi milli ára þá er það þó lægst á árinu 1993. Tölur frá 1982--1987 eru miklu hærri.