Fullgilding ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar um bókun 47

157. fundur
Þriðjudaginn 10. maí 1994, kl. 18:31:15 (7887)


[18:31]
     Frsm. 3. minni hluta utanrmn. (Anna Ólafsdóttir Björnsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég verð að hryggja hv. 2. þm. Vestf. með því að segja að ég stend við mín fyrri orð. Ég held að jafnvel þótt við sendum stórséní á borð við hæstv. utanrrh. til Brussel til að reyna að hafa áhrif þá munum við ekki hafa nein áhrif þar. Ég ítreka bara mín fyrri orð.