[14:18]
Anna Ólafsdóttir Björnsson :
Virðulegi forseti. Það eru nokkur vonbrigði að taka hér þátt í atkvæðagreiðslu um þetta stóra mál, um stjórn fiskveiða, og sjá á eftir því eina atriði sem e.t.v. hefði orðið til bóta, þ.e. fiskvinnslukvótanum, frá núverandi fiskveiðastefnu. Við kvennalistakonur höfum í raun ekki tekið undir þá fiskveiðistefnu sem nú er með öllu því framsali og þeim vandamálum sem þar koma upp og við höfum einnig haft okkar eigin stefnu sem er byggðakvóti og teljum hana mun farsælli. Það er verið að gera ýmsar breytingar með þessu frv. sem hér liggur fyrir og þeim breytingum sem verið er að gera á stjórn fiskveiða. Sumar eru til þess að gera stöðuna ögn skárri eins og gagnvart smábátum. Aðrar eru til hins verra og jafnvel til þess fallnar að gera kerfið flókið og mjög erfitt í framkvæmd og því greiði ég ekki atkvæði.