Stækkun atvinnu- og þjónustusvæða á Vestfjörðum

158. fundur
Miðvikudaginn 11. maí 1994, kl. 14:52:36 (7968)


[14:52]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir :
    Virðulegi forseti. Í 2. gr. þessa frv. er kveðið á um það að ekki sé hægt að veita öðrum sjávarútvegsfyrirtækjum á Vestfjörðum aðstoð en þeim sem eru að sameinast og eru jafnframt í sveitarfélögum sem skuli sameinast eða séu að sameinast. Ég er ósammála því að setja slíkar þvingunaraðgerðir á fyrirtæki og sveitarfélög og sit hjá.