Framhaldsfundir Alþingis

160. fundur
Fimmtudaginn 16. júní 1994, kl. 10:03:08 (8059)


[10:03]
     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
    Forseti Íslands hefur gefið út svohljóðandi forsetabréf:
    ,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:
    Ég hef ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda fimmtudaginn 16. júní 1994 kl. 10.00.
Gjört í Reykjavík, 7. júní 1994.

Vigdís Finnbogadóttir.



_____________


Davíð Oddsson.

Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.``

    Framhaldsfundir Alþingis hefjast því nú á ný. Hæstv. forseta, hv. alþingismenn svo og starfsmenn Alþingis býð ég velkomna til þingstarfa við þessi sérstaklega hátíðlegu tímamót í sögu lýðveldisins.