Afbrigði um dagskrármál

160. fundur
Fimmtudaginn 16. júní 1994, kl. 10:07:52 (8063)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Svo háttar til með bæði dagskrármálin að þau eru of seint fram komin og verður nú leitað afbrigða um að þau megi koma á dagskrá, sbr. 6. mgr. 44. gr. þingskapa, sem kveður á um að þingsályktunartillögur þurfi að koma fram innan 6 mánaða frá þingsetningu. Verður nú afbrigða leitað.