Afbrigði um kosningu í fastanefndir

1. fundur
Mánudaginn 04. október 1993, kl. 13:54:20 (11)

[13:54]
     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Samkvæmt 13. gr. þingskapa ber að kjósa í fastanefndir þingsins á þessum fyrsta fundi, en forseta hefur borist ósk um það frá formönnum þingflokka að kosningu til fastanefnda verði frestað til miðvikudags. Ef enginn hreyfir andmælum telst samþykkt að veita afbrigði til þess að fresta þeirri kosningu til miðvikudags og er þá þeirri kosningu frestað.