[14:48]
Anna Ólafsdóttir Björnsson :
Virðulegi forseti. Svo sem fram kom í máli málshefjanda þá er lokun Gunnarsholts einungis hluti af stærri heild en allt í allt þá sýnist mér að hér sé verið að skera niður um fimmtung eða 20% þau framlög sem fara til áfengismeðferðar og það held ég að sé mjög dýr sparnaður. Þetta sýnir einnig mjög lítinn skilning á því vandamáli sem áfengissýki er og ég held að þetta sé mjög vond leið til að fara. Ég finn heldur ekki heila brú í því að ætla að þessu fólki sem á að fara --- svo ég taki Gunnarsholt sem dæmi --- þaðan út. Bent hefur verið á að nú er í umræðu að loka Staðarfelli vegna sama niðurskurðar. Það er ekki hægt að hrekja fólk frá einu heimili sem er að fara að loka til annars ef svo hrapallega vildi nú til.
Forsvarsmenn Hlaðgerðarkots eru áhyggjufullir og það hefur einnig komið fram að sumir þeirra sem eru á Gunnarsholti hafa ekki átt annars staðar möguleika til þess að komast í hús vegna sinna sérstöku vandamála og vegna þess að þjóðfélagið býður ekki upp á
kost fyrir þetta fólk.
Ég hlýt líka að spyrja: Er þingmeirihluti fyrir þessari hugmynd heilbrrh.? Ég bendi á grein eftir Árna Johnsen í Morgunblaðinu í dag og ég bendi líka á það sem hv. þm. Pálmi Jónsson sagði áðan og ég held að það hljóti að vera fleiri með efasemdir.
En stærsta málið finnst mér vera hinn almenni niðurskurður til áfengismála, framlag til áfengismála, og þau gjöld sem á að fara að heimta af þessum sjúklingum sérstaklega. Mér finnst þetta sýna nokkurt skilningsleysi og ég vona að það verði bragarbót á. Ég hef trú á því ef það verður sest yfir þetta mál þá muni finnast betri niðurstaða.