Tilkynning um kosningu embættismanna fastanefnda

9. fundur
Mánudaginn 11. október 1993, kl. 15:01:10 (115)

[15:02]
     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Borist hefur eftirfarandi bréf til forseta Alþingis, dags. 11. okt. 1993:
    ,,Hér með tilkynnist að á fundi utanrmn. 7. okt. sl. var Björn Bjarnason kjörinn formaður utanrmn. og Steingrímur Hermannsson kjörinn varaformaður nefndarinnar.``
    Undir þetta bréf ritar Þorsteinn Magnússon, ritari nefndarinnar.
    Þá hefur einnig borist bréf til forseta frá fjárln. Það er dags. 11. okt. 1993:
    ,,Á fundi fjárln. fyrr í dag var Sigbjörn Gunnarsson, kjörinn formaður nefndarinnar og Sturla Böðvarsson varaformaður.``
    Undir þetta bréf ritar Sigbjörn Gunnarsson formaður.